"Vendu þig á að vera stillt"

Aumingja Halldór heitinn Laxness. Hvers á hann að gjalda? Núna fullyrðir Mogginn að Halldór hafi ort þennan auma leirburð barn að aldri og skráð það inn í einhverja póesíbók á Vegamótastíg.  Til allrar guðsblessunar þá stendur hann Guðmundur Magnússon gúglvaktina og hrekur þennan áburð af sinni snilld og nákvæmni sagnfræðings, sjá hérna Ekki eftir Halldór Laxness

Dóri litli hefur bara verið eins og ég á barnsaldri, í minni kynslóð gengu minningarbækur milli allra stelpna, á tímum Dóra litla hafa það verið póesíbækur. Sennilega hafa sams konar steríl og formúlukennd skrif verið einkenni póesíbókaskrifa og voru í minningarbókum minnar bernsku. Ég man að það tíðkaðist að teikna alltaf hjörtu og skrifa "Mundu mig - ég man þig" og svo var gjarnan skrifuð vísa. Ég man eftir einni vísu sem ég skrifaði og las oftsinnis. Hún er ekki eftir mig, hún sirkúleraði bara þarna í barnamenningu minningabókanna og hún er svona:

Vendu þig á að vera stillt,
vinnusöm og þrifin.
Annars færðu engan pilt,
ef þú gengur rifin.

Úff!!!... ég má ekki til þess hugsa að einhver moggarannsóknarblaðamennskugrúskari komist í minningarbækur  sem ég skrifaði í sem barn og finni kannski þessa vísu og segi hana vera eftir skáldið Salvöru Gissurardóttur. Það gersamlega eyðileggur skáldferil minn, ég er stolt eins ljóðs skáld, ég yrki bara ljóð sem kveikir elda og enginn herskár femínisti vill sitja undir svona ekkisens leirburði og bulli um stilltar, vinnusamar, þrifnar og órifnar konur. Sem sagt, Dóri litli á samúð mína alla. Hann orti ekki frekar þetta bull  sem honum er kennt fremur en ég orti barn um mikilvægi þess að vera engin tötruhypja. 

Ólína er búin að uppgötva skandalinn og er ómyrk í máli: Nei, hættið nú!

Þetta stefnir í stórhneyksli. Við skáldkonur og bloggarar þessa lands finnum blóðið til skyldunnar, við viljum ekki að lítil börn eins og hann Dóri litli og við Ólína þegar við vorum litlar þurfum að gjalda þess á fullorðinsárum að hafa párað einhverja vitleysu inn í minningabækur. Grin 

 


mbl.is Elsti varðveitti kveðskapur Halldórs Laxness í póesíbók á Vegamótastíg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband