8.2.2008 | 17:02
Björt ljós, borgarljós
Ég sit hérna í lok föstudagsins og horfi út um gluggann á óveðrið og finnst núna á vetrarhátíðinni þessi heimur Reykjavíkurborgar með Esjuna í bakgrunni vera heimur sem ég gæti alveg ferðast burt frá. Ég hlusta á geisladisk Megasar Loftmynd um borgarsamfélagið og hugsa um hvað það eru margar borgir og hvernig borgirnar eru núna byggjast upp í innviðum Netheima. Ég held áfram vídeóbloggtilraunum mínum og núna í dag bloggaði ég um SecondLife undir áhrifum frá laginu Björt ljós, borgarljós eftir Megas.
Vídeóbloggið mitt er 8 mín. og endar á því að ég stend í ljósum logum og fuðra upp. Ég er að tapa mér í vídeóeffektunum, þarf að prófa þá alla.
Ég er sammála Wesseling þessum sem talaði á ráðstefnu í REykjavík í dag og sagði:
"Wesseling, sem lýsir sér sem netfíkli, bloggara og ráðgjafa, sagði að netið væri að þróast í átt að risastóru tengslaneti einstaklinga, sem skiptust á upplýsingum og hugmyndum. Þeir sem vildu selja vöru og þjónustu á netinu yrðu að hafa þetta ofarlega í huga og nýta sér þá mörgu samskiptavefi, sem nú er að finna."
Ég er sammála að Netið verður að risastóru tengslaneti en ég held ekki endilega að aðaltilgangur þess sé að selja vörur og þjónustu. Hmmm... ætli það hafi verið í dag sem Moggabloggið fór að verða svona skreytt auglýsingum?
Sennilega verður maður að fara að huga að flutningi.
|
Vangaveltur um netmarkað |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.2.2008 kl. 08:59 | Facebook



Athugasemdir
Sæl Salvör,
Skemmtilegt að fylgjast með þessum tilraunum þínum. Heyrði í þér í morgunútvarpinu og hafði gaman af.
Held að ég gæti týnt mér í þessum sýndarveruleika. Pínulítið ógnveikjandi.
Anna Kristinsdóttir, 8.2.2008 kl. 22:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.